Possible usage
Possible usage
Arkitektur og byggingarlist
Hönnuðir velja í auknum mæli duftlökkun vegna þess hvað tæknin býður upp á margvíslegar áferðir og litamöguleika. Slitsterk áferð gerir duftlökkun að hagkvæmum valkosti þegar hreinlæti og ending er annarsvegar og þess vegna er hún oft notuð fyrir sjúkrahús eða matvælaframleiðslu. Duftlökkun er einnig algeng á innréttingum og tækjum í verslunar- skrifstofu og iðnaðarhúsnæði og einnig á heimilum.
Fyrir bílinn
Duftlökkun er mjög algeng í bílaiðnaði. Aðferðin er notuð til að mála felgur, stuðara, húna, skrautlista og merki, bílpalla, vatnskassa og vélahluta, svo eitthvað sé nefnt. Nokkrir bílaframleiðendur eru byrjaðir að heilmála bíla með duftlakki - og GM, Ford og Chrysler hafa gert með sér samtök til að fullkomna þessa nýju tækni við bifreiðaframleiðslu.
Heimilistæki
Á þínu heimili eru án efa tugir ef ekki hundruð hluta sem eru duftlökkuð frá framleiðanda. Öll stærri heimilistæki eins og eldavélar, ísskápar, þvottavélar og þurrkarar eru duftlökkuð. Sama gildir um ýmiskonar eldhúsáhöld eins og hrærivélar, uppþvottavélar, brauðristar og örbylgjuofna – og mörg smærri áhöld eins og t.d. dósaupptakara eða salatskál. Duftlökkun hefur víða komið í stað postulínsáferðar á eldhúsáhöldum og á íhlutum heimilistækja.
Dufthúðaðir hlutir af öllum stærðum og gerðum
Duftmálaðir hlutir eru víða í umhverfi okkar. Sem dæmi má nefna ljósaumgerðir og ljósaíhlutir, skeljar á gemsa og önnur sem verða að þola mikla handfjötlun, loftnet og annað sem þarf að þola veðrun, og margt fleira. Dráttarvélar og landbúnaðartæki eru oft dufthúðuð. Golfkylfur, golfkerrur, skíðastafir, skíðabindingar, reiðhjól, lyftingagræjur – öll þessi tæki eru jafnan dufthúðuð. Búðarhillur og rekkar, sjálfsalar, hraðbankar, hurðir og gluggar eru dufthúðuð til að tryggja slitsterka áferð og endingu. Skrifstofubúnaður er jafnan dufthúðaður, t.d. skjalaskápar, stólar og borð. Það er líklegt að útigrillið sé dufthúðað, grillspaðarnir líka, sem og slökkvitæki heimilisins.
Duftlökkun á málma, tré og plast
Í upphafi var dufthúðun nánast eingöngu notuð á málm. Ný tækni við lægra hitastig gerði mögulegt að duftmála tré, plast og keramik, svo eitthvað sé nefnt. Það má segja að tæknibylting hafi orðið þegar þróuð var aðferð til að duftlakka tré við lághita.
Í dag nýtir húsgagnaiðnaðurinn duftlökkunartækni á tré til að framleiða slitsterk skrifstofuhúsgögn, eldhúsinnréttingar, garðhúsgögn og margt fleira. Með duftlökkun endast þessi húsgögn mun lengur en ella. Ýmis rafmagnstæki úr plasti eru duftlökkuð og mjúkmálmar eins og ál öðlast aukin slitstyrk með duftlakksáferð.
+ link
+ details